MjaðmalosTekið af www.hrfi.is Mjaðmalos
Hvað er mjaðmalos? Mjaðmalos sést helst hjá stærri hundategundum. ML (mjaðmalos er skráð hér eftir sem ML til styttingar) er sjúkdómur sem hefur áhrif á liðamótin í mjöðminni þegar hvolpurinn er að vaxa. ML getur verið í báðum eða í annarri mjöðminni. Mjaðmaliðurinn samanstendur af lærleggs kúlunni og skálinni á mjaðmagrindinni. Liðband liggur úr skálinni yfir í toppinn á kúlunni og liðpoki liggur þétt umhverfis liðinn. Liðfletirnir þar sem kúlan og skálin snertast eru klædd brjóski og eru alveg slétt þannig að hreyfing liðsins á að vera slétt og án merkjanlegs viðnáms. ML stjórnast af margslungnum erfðafræðilegum- og umhverfis þáttum, sem lýsir sér þannig að kúlan fellur ekki nógu vel í skálina. Ástæðurnar geta verið eftirfarandi: vöðvarnir, bandvefurinn og liðböndin umhverfis mjaðmaliðinn eru of slök og halda þannig ekki nógu vel utanum liðinn, eða skálin er of grunn þannig að los kemur á liðinn. Oftar en ekki fæðast hvolparnir með eðlileg liðamót en vefurinn umhverfis "þroskast" óeðlilega á vaxtarskeiði hvolpsins. Þegar los kemur á liðinn fjarlægist kúlan skálina og ákveðið stress álag kemur á liðbandið og liðpokann og það leiðir til þess að ennþá meira los kemur á liðinn. Vöðvarnir umhverfis liðinn reyna að þröngva beinunum aftur saman en án árangurs. Vegna þunga hundsins þrýstist kúlan í efrikant skálarinnar þannig að tveir beinfletir fara að núast saman í stað brjóskflatanna. Þegar beinin fara að núast saman koma þar beinmyndanir og það myndast vítahringur þar sem þessar beinmyndanir valda enn meiri ertingu (irritation) sem aftur veldur ennþá meiri beinmyndun og hundurinn er kominn með liðagigt (arthritis). Einkenni. Tegundir. Greining. Meðferð. Eiginleikar Cartropens er að: Einnig er hægt að fjarlægja mjaðmakúluna og búa þannig til falskan lið, þ.e. engin tengsl eru þá á milli beinanna og vöðvarnir sjá um að halda fætinum á sínum stað. Með þessu er búið að fjarlægja sársaukann þegar beinin snertast. Takmörkin við þessa aðgerð er sú að hundurinn má ekki vera of þungur (max 25-30 kíló). Aðrar aðgerðir: Fyrirbyggjandi aðgerðir: Umhverfisþættirnir: Mikilvægt er að hvolpurinn sé ekki of þungur á vaxtarskeiðinu og að hvolpurinn vaxi ekki of hratt þannig að vöðvar, liðbönd og sinar umhverfis mjaðmaliðinn fái sinn tíma til að þroskast og styrkjast á bestan hátt. Ef eitthvað los er á mjöðmum hvolpsins eykst það til muna með of mikilli hreyfingu. Þess vegna ætti að forðast langhlaup, hopp o.þ.h. Erfðaþættirnir: Þegar hundurinn er mjaðmamyndaður er hann deyfður. Hann er lagður á bakið og lærleggirnir settir í ákveðnar stellingar. Myndirnar eru dæmdar af fáum dýralæknum í Noregi og er það þáttur í því að fá sem besta samræmið í aflestrinum. Sem ræktandi ætti það að vera skylda hans og metnaður að gera ræktunina betri. Það ætti að vera metnaður hans að selja heilbrigða hunda bæði þeirra vegna og eigendanna vegna. ML fylgja miklar kvalir og hundur á ekki "góða ævi" ef hann þarf að ganga með þennan sjúkdóm í mörg ár. Sársauki getur átt þátt í að hundurinn er ekki eins og hann á að sér að vera og það þekkist að í sumum tilfellum geta þeir orðið "aggresivir". Mikið af Setter hundum eru veiðihundar og hver vill kaupa veiðihund sem er ónothæfur 5-7 ára. Eigandinn/fjölskyldan tengist hundinum sínum oftar en ekki mjög sterkum böndum og það er mikið álag tilfinningalega að þurfa að horfa á hundinn sinn þjást af ML. Kostnaður getur líka orðið tilfinnanlegur ef þarf að fara ítrekaðar ferðir til dýralæknis og hafa hundinn á lyfjum í skemmri eða lengri tíma. Það ætti ekki að þurfa að hvetja hundaeigendur og sérstaklega ræktendur til að láta mynda hundana og ræktendur ættu að hvetja kaupendur til að mynda hundana sína. Þannig er auðveldara að "kortleggja " ræktunina og sjá hvaða línur eru best fallnar til ræktunar. Grein eftir Jakobínu Sigvaldadóttur dýralækn |
Schafer Nafn: KRISTJANAFarsími: 790-6868Tölvupóstfang: [email protected]Um: Schafer ræktun - Þýskur fjárhundurTenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is