Hlýðni Brons



Nýjar reglur hjá Hundaræktunarfélagi Íslands
01-5-2013 sjá hér  Nýjar reglur




Gömlu reglurnar

26.7.2011

 

Bronsmerki próf

Bronsmerki próf er einungis hægt að framkvæma af Hundaræktarfélagi Íslands eða deildum innan þess. Dómarar skulu viðurkenndir af HRFÍ.

Prófið telst ekki til nafnbóta í ættbók.

Einkunnargjöf 0 þar næst 5-5,5-6-6,5 o.s.frv. upp í10 eru svo margfölduð með tölum sem gefnar eru upp fyrir hverja æfingu og gefur heildar stigafjölda. Einkunnargjöfin 0 þýðir að æfingin er ekki viðurkennd og prófið ekki gilt.

Allir hundar sem ná 90 stigum eða meira og eru með viðurkennda einkunn í öllum æfingum fá afhent brons merki HRFÍ. Merkið sjálft er einungis veitt einu sinni.

Að öðru leiti er vísað í reglurnar "Almennar þátttökureglur og dómaraskilmálar", í öðrum og þriðja hluta.

 

Æfing 1: Skoða tennur

Margföldun: 1 Hámarksstigagjöf: 10

Skipanir: Orð eða merki fyrir "kyrr"

Framkvæmd:Æfingin byrjar með hundinn í upphafsstöðu (sitjandi eða standandi við vinstri hlið leiðandans). Dómarinn stillir sér upp u.þ.b. 5 metrum fyrir framan parið, snýr sér að þeim og spyr hvort þeir séu tilbúnir. Dómarinn gengur að parinu, leiðandinn skipar hundinum að vera kyrr og nú skal dómari skoða upp í hundinn (athuga bitið). Viðurkenning á æfingunni er krafa til að geta haldið áfram í prófinu.

Dómaraleiðbeiningar:

Þegar gefin er einkunn skal almenn hegðun hundsins tekin til greina. Hundur sem sýnir árásargjarna hegðun fellur og skal vísað úr prófinu. Til að fá viðurkennda einkunn er sú krafa gerð að dómarinn geti skoðað bitið á eðlilegan hátt, ánþess að hundurinnsýni mótþróa.

 

Æfing 2: Hælganga í taumi

Margföldun: 2 Hámarksstigagjöf: 20

Skipanir:Orð eða merki fyrir "hæll". Leyfð frá kyrrstöðu og í hraðabreytingum.

Framkvæmd: Æfingin byrjar með hundinn í upphafsstöðu. Leiðandi skal halda í tauminn með vinstri hendi. Hundurinn skal ganga viljugur í lausum taumi við vinstri hlið leiðandans með höfuðið eða herðar í beinni línu við vinstri fót leiðandans. Æfingin skal fela í sér eðlilega göngu með beygjum og stoppum, hæga göngu og hraða göngu án beygja. Hundurinn á að setjast hratt og án skipunarí upphafsstöðu í hvert sinn sem leiðandi stoppar.

Dómaraleiðbeiningar:

Öll frávik sem parið gerir skulu endurspeglast í einkunnargjöf. Hundur sem togar stöðugt í tauminn eða þarf að "draga" áfram, skal ekki fá viðurkennda einkunn.

 

Æfing 3: Hælganga án taums

Margföldun: 4 Hámarksstigagjöf: 40

Skipanir:Orð eða merki fyrir "hæll". Leyfð frá kyrrstöðu og í hraðabreytingum.

Framkvæmd: Æfingin byrjar með hundinn í upphafsstöðu. Hundurinn skal ganga viljugur við vinstri hlið leiðandans með höfuðið eða herðar í beinni línu við vinstri fót leiðandans. Æfingin skal fela í sér eðlilega göngu með beygjum og stoppum, hæga göngu og hraða göngu án beygja. Hundurinn skal setjast hratt og án skipunar í upphafsstöðu í hvert sinn sem leiðandi stoppar.

Dómaraleiðbeiningar:

Öll frávik sem parið gerir skulu endurspeglast í einkunnargjöfinni. Ekki skal viðurkenna æfingu hunds sem fylgir leiðanda með meira en 1 meters fjarlægð stóran hluta af æfingunni.

 

Æfing 4: Liggja úr kyrrstöðu

Margföldun: 2 Hámarksstigagjöf: 20

Skipanir:Orð eða merki fyrir "kyrr", "liggja" og "hæll".

Framkvæmd:Æfingin byrjar með hundinn í upphafsstöðu. Eftir merki frá ómara/prófstjóra gengur leiðandi með hundinn lausan við hæl u.þ.b.10 metra. Eftir nýtt merki stoppar leiðandinnog skipar hundinum að leggjast. Gengur síðan u.þ.b.10 metra frá hundinum sem er enn í liggjandi stöðu, þar til dómari gefur merki um að stoppa og snúa við. Leiðandi fær eftir það merki um að fara til baka til hundsins. Eftir merki frá dómara skal skipa hundinum að setjast upp í upphafsstöðu.

Dómaraleiðbeiningar:

Æfingin dæmist þar til leiðandi hefur stöðvað og snúið sér við u.þ.b.10 metra frá hundinum. Að leggjast niður er aðalþáttur æfingarinnar og skal einkunn endurspegla

hversu viljugur hundurinn er til að leggjast og hversu rólegur hann liggur kyrr.

Hundur sem reisir sig upp eða sest upp (eftir að hafa lagst niður) skal ekki fá hærri einkunn en 5, ef hann gerir það áður en leiðandi hefur stoppað og snúið sér við.

Ef hundurinn sest upp eða reisir sig eftir að leiðandi hefur stoppað og snúið sér við, skal hann ekki fá hærri einkunn en 8.

 

Æfing 5: Innkall frá sitjandi stöðu

Margföldun: 1 Hámarksstigagjöf: 10

Skipanir:Orð eða merki fyrir "sitja kyrr" og "hæll".

Framkvæmd:Æfingin byrjar með hundinn sitjandi við vinstri hlið leiðandans. Eftir merki skipar leiðandinn hundinum að vera kyrr sitjandi. Eftir nýtt merki gengur leiðandi u.þ.b.15 metra frá hundinum og snýr sér svo á móti hundinum. Leiðandi fær svo nýja skipun um að kalla hundinn inn í upphafsstöðu.

Dómaraleiðbeiningar:

Ef hundurinn er ekki viljugur í þessari æfingu hefur það í för með sér verulega lækkun á einkunn.

Ef hundurinn kemur ekki til leiðanda eftir fyrstu innkallsskipun

skal hann ekki fá hærri einkunn en 8.

Ef hundur er ekki kominn til leiðanda eftir 2 skipanir, skal ekki

gefa hærri einkunn en 6.

Ef hundurinn er ekki kominn til leiðanda eftir 3 skipanir, fæst æfingin ekki viðurkennd.

Færi hundurinn sig úr stöðu sem jafngildir þrefaldri eigin lengd

áður en leiðandi hefur stoppað og snúið sér við, skal æfingin ekki viðurkennd.

Færi hann sig minna en þrefalda eigin lengd skal einkunnin ekki vera hærri en 7.

Ef hundurinn byrjar að hreyfa sig í átt að leiðanda fyrir innkallsskipunina eftir að leiðandi hefur stoppað og snúið sér við, skal ekki gefa hærri einkunn en 7.

Hundur sem reisir sig upp eða leggst niður án þess að færa sig úr stað, áður en innkall er gefið, skal ekki fá hærri einkunn en 8.

Mikil áhersla er lögð á að hundurinn velji styttstu leið og komi á góðum hraða til leiðanda. (Að öðru leiti skal vitnað í reglurnar "Almennar þátttökureglur og dómaraskilmálar".

 

Æfing 6: Standa á göngu

Margföldun: 3 Hámarksstigagjöf: 30

Skipanir:Orð eða merki fyrir "hæll" og "standa".

Framkvæmd:Æfingin byrjar með hundinn í upphafsstöðu. Eftir merki

gengur parið u.þ.b. 10 metra laus við hæl, þar til leiðandi fær merki um að skipa hundinum að standa á göngu, á meðan leiðandi heldur áfram göngu u.þ.b. 10 metra. Leiðandi stoppar við skipun dómara og snýr sér við. Leiðandinn fær svo skipun um að gangatil hundsins. Eftir merki skal hundinum skipað í upphafsstöðu.

Dómaraleiðbeiningar:

Dómur á æfingunni endar þegar leiðandi hefur stoppað og snúið sér við u.þ.b. 10 metrum frá hundinum. Hundurinn skal stoppa snarlega innan marka sem eru tvöföld eigin lengd eftir að leiðandi hefur gefið skipun.

Hundur sem leggst eða sest eftir að hafa fyrst stoppað í standandi stöðu skal ekki fá hærri einkunn en 5, gerist það áður en leiðandi hefur stoppað og snúið sér við.

Ef það gerist eftir að leiðandi hefur snúið sér við skal ekki gefa hærri einkunn en 8.

 

Æfing 7: Liggja í 2 mínútur

Margföldun: 4 Hámarksstigagjöf: 40

Skipanir:Orð eða merki fyrir "liggja", "kyrr" og "setjast upp".

Framkvæmd:Parið stillir sér upp með hundinn í upphafsstöðu. Eftir merki skal leiðandi gefa hundinum skipun um að leggjast, við nýtt merki skipar hann hundinum að vera kyrr. Leiðandi fer frá hundinum u.þ.b. 15 metra og snýr sér við og stendur andspænis honum í 2 mínútur. Þegar tíminn er liðinn fær leiðandi merki um að ganga u.þ.b. 1 metra aftur fyrir hundinn þar sem hann stoppar ogsnýr sér við. Eftir nýtt merki gengur leiðandi til hundsins og fær merki um að skipa hundinum í upphafsstöðu.

Dómaraleiðbeiningar:

Hundur sem reisir sig upp áður en tímataka á æfingunni hefst fær ekki viðurkennda einkunn.

Hundur sem sest upp án þess þó að færa sig úr stöðu, þegar tímataka er hafin, skal ekki gefa hærri einkunn en 5, ef þetta gerist áður en 2 mínútur eru liðnar. Skilyrði til að fá viðurkennda einkunn er (samt semáður) að hundurinn setjist ekki upp fyrr en minnst hálfur tíminn er liðinn.

Færi hundurinn sig styttra en þrefalda eigin lengd,geltir eða vælir, skal ekki gefa hærri einkunn en 8.

Færi hundurinn sig lengra en þrefalda eigin lengd, fæst æfingin ekki viðurkennd ef þetta gerist áður en tíminn (2 mínútur) er liðinn. Gerist þetta eftir að tíminn er liðinn skal ekki gefa hærra einkunn en 8.

 

Æfing 8: Heildarmat

Margföldun: 1 Hámarksstigagjöf: 10

Dómaraleiðbeiningar:

Með heildarmati er fyrst og fremst átt við samvinnu milli hunds og leiðanda, auk vilja og vinnugleði hundsins í gegnum allar æfingar. Taka skal tillit til hegðunar hunds og leiðanda meðan á æfingunum stendur og á milli þeirra. Þá skal einnig tekið tillit

til skapgerðar viðkomandi hundakyns.

Hámarks stigagjöf: 180

Athugasemd:

Ef hundi mistekst í einhverri æfingu og dómarinn telur að það byggist á misskilningi, er leyfilegt að parið endurtaki æfinguna.

 

Röðun á æfingum

 Æfing 1 Skoða tennur  - margföldun 1 =10 stig hæðst

Æfing 2 Hælganga í taum - margföldun 2 = 20 stig hæðst

Æfing 3 Hælganga án taums - margf. 4 = 40 stig hæðst

Æfing 4 Liggja úr kyrrstöðu, 10 m - margf. 2 = 20 stig hæðst

Æfing 5 Innkall frá sitjandi stöðu, 15 m - margf. 1 = 10 stig hæðst

Æfing 6 Standa á göngu, 10 m - margf. 3 = 30 stig hæðst

Æfing 7 Liggja í 2 mínútur, 15 m,tímataka hefst þegar leiðandi snýr sér við. - margf.4 = 40 stig hæðst

Æfing 8 Heildarmat - margfeldi 1 = 10 stig hæðst

Samtals 180 stig hæðst.

 


Hlýðni Brons

Einkunnargjöf er gefin frá 0-5, 5,5-6-6,5 o.s.frv. upp í 10. Lágmarks heildar stigafjöldi til að ná bronsprófinu er 90 stig. Hámarksstigafjöldi er 180 stig. 0 er fall.

1. Heilsa, skoða tennur

Þjálfari stendur með hund sinn við hælstöðu. Dómari kemur og stillir sér ca 5 metrum frá, heilsar og spyr hvor þjálfari sé tilbúinn. Þá gengur hann til hunds og skoðar í honum tennurnar.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 10 stig. 

2. Hælganga í taum

Þjálfari stendur með hund sinn í taum við vinstri hönd. Þá er gengið hælgöngu eftir skipunum prófstjóra.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 20 stig 

3. Hælganga án taums (eftir þessa æfingu er hundur ekkert meira í taum)

Nú er taumurinn tekinn af hundi og hann stillir sér upp við hæl þjálfara. Við skipun prófstjóra er hælganga gengin án taumsins.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 40 stig 

4. Sitja og liggja

Þjálfari gengur 10 metra með hund, stoppar, skipar hundi að setjast og leggjast, og þjálfari gengur áfram 10 m og kemur svo til baka og lætur hund setjast upp.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 20 stig 

5. Innkall

Hundur er látinn setjast og þjálfari gengur 15 metra frá honum, og kallar svo hundinn.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 10 stig

6. Standa á ferð

Þjálfari og hundur ganga hælgöngu. Þegar prófstjóri segir til, gefur þjálfari hundi sínum skipun um að stoppa en heldur sjálfur áfram göngu ca 10 metra, en hundur stendur kyrr á meðan. Þegar prófstjóri gefur merki fer þjálfari aftur til hundsins í upphafsstöðu.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 30 stig 

7. Liggja kyrr í 2 mín

Hundur er látinn leggjast niður og þjálfari gengur frá honum ca 15 metra og stendur fyrir framan hann í 2 mínútur. Að því loknu gengur hann aftur til hunds og lætur hundinn setjast við hæl.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 40 stig 

8. Heildarmat.

Dómari metur hversu vel hundur og stjórnandi hafa unnið saman í prófinu.

Hámarksstigafjöldi fyrir þessa æfingu er 10 stig

  

(Það má einungis nota munnlegar skipanir EÐA handabendingar. Ef þú ætlar að nota handabendingar þá þarf að láta dómara vita fyrirfram. Ef þú gerir bæði eru það taldir vera tvöfaldar skipanir.

Svo má ekki gefa skipanir í beygjum í hæl göngunni, einungis við skipting á hraða og þegar þú leggur af stað úr kyrrstöðu. Svo á hundurinn að setjast sjálfkrafa án skipun þegar stoppað er.

Stigagjöf er frá 5-10 (þ.m.t. hálfar tölur) eða 0 ekkert fyrir neðan 5. Það þarf einungis 90 stig til að ná prófinu en má ekki fá 0 á neinni æfingu. Þó þú færð næstum fullt hús með 0 í einni æfingu þá ertu fallinn.)

 

 

Schafer

Nafn:

KRISTJANA

Farsími:

790-6868

Um:

Schafer ræktun - Þýskur fjárhundur

Sýningar- Þjálfun kl 20

atburður liðinn í

1 mánuð

6 daga

Hvolpasýning sunnudag 27.okt 2024

atburður liðinn í

1 mánuð

16 daga

NKU -Winter Wonderland 23 nóv

atburður liðinn í

19 daga

DNA-test

atburður liðinn í

3 ár

8 mánuði

16 daga

Belcando hundafóður

atburður liðinn í

5 ár

8 mánuði

11 daga

Ice Tindra Bæjarrölt kl 13

atburður liðinn í

11 daga

Orivet heilsutest

atburður liðinn í

1 ár

3 mánuði

7 daga

Tenglar

Flettingar í dag: 174
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 5174
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1184224
Samtals gestir: 91736
Tölur uppfærðar: 12.12.2024 02:51:24