07.06.2011 23:32Skráning á deildarsýninguSíðasti skráningadagur á morgun 8. júni Deildarsýning Schäferdeildarinnar verður haldin laugardaginn 16. júlí 2011
Schäferdeildin mun halda glæsilega sýningu í sumar. Dómari verður Svíinn Fredrik Steen sem er bæði Schäferræktandi og sérhæfður Schäferdómari. Sýningin verður haldin úti en deildin hefur tekið frá svæðið Guðmundarlund í Kópavogi. Aðgangur á sýninguna er ókeypis. Skráning fer fram í gegnum skrifstofu HRFÍ. Sýningagjald verður það sama og fyrir aðrar sýningar HRFÍ. Við hvetjum alla Schäfereigendur til að taka þátt og nýta þetta góða tækifæri til þess að fá dóm frá sérhæfðum Schäferdómara. Skráningafrestur rennur út miðvikudaginn 8. júní. Guðmundarlundur er fallegt og gróið landsvæði í eigu Skógræktar Kópavogs. Deildin fær afnot af allri aðstöðu svo sem skálanum sem sést á myndinni til vinstri auk salernisaðstöðu.
Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri. Deildarsýning Schäferdeildarinnar
Fyrsta og eina deildarsýning deildarinnar til þessa var haldin 1988 eða fyrir 23 árum síðan. Deildin hefur áður sótt um leyfi til þess að halda sýningu en ekki fengið vilyrði fyrir því fyrr en nú. Markmið okkar er að gera sýninguna sem glæsilegasta og eftirminnilega. Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin en Verslunin Bendir ehf. gefur bikara og medalíur á sýningunni. Valinn verður: Besti hundur sýningar Besti ungliði sýningar Besti hvolpur sýningar Besti öldungur sýningar Besti afkvæmahópur sýningar Besti ræktunarhópur sýningar Besta par sýningar Á sýningunni verður mögulegt að fá íslenskt meistarastig auk þess sem árangur mun telja til stigahæstu hunda og stigahæsta ræktenda deildarinnar. Styrktaraðilar sýningarinnar:
Skrifað af KGB |
Schafer Nafn: KRISTJANAFarsími: 790-6868Tölvupóstfang: [email protected]Um: Schafer ræktun - Þýskur fjárhundurTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is