18.06.2011 07:42

D-got 2011 Ljósmyndarstofa Rut

Var að setja inn myndir af flotta D-gotinu sem teknar voru á Ljósmyndastofu Rutar.

14.06.2011 23:20

Sýningarþjálfun í Júní og júlí

14.06.2011
Sýningarþjálfun
Picture
Sýningaþjálfun deildarinnar fyrir deildarsýninguna verður alla miðvikudaga fram að sýningu. Fyrsta sýningaþjálfunin verður haldin á morgun, miðvikudag, á Víðistaðatúninu í Hafnarfirði kl. 19. Sýningaþjálfanir deildarinnar verða eftirfarandi:

Miðvikudag  15. júní  Víðistaðatúni kl. 19
Miðvikudag  22. júní  Víðistaðatúni kl. 19
Miðvikudag  29. júní  Víðistaðatúni kl. 19
Miðvikudag    6. júlí   Guðmundarlundi kl. 19
Miðvikudag  13. júlí   Guðmundarlundi kl. 19

Hvert skipti kostar 500 kr. og rennur allur ágóði beint til Schäferdeildarinnar. Mikilvægt er að taka með sér nammi eða dót fyrir hundinn, kúkapoka, taum (sýningataum) og einnig er gott að hafa keðju meðferðis.

Hér fyrir neðan má sjá kort af Hafnarfirði og er Víðistaðatún merkt með rauðu. Athugið að hægt er að hreyfa kortið til ásamt því að stækka og minnka það.

sjá kort hér
http://schaferdeildin.weebly.com/index.html

14.06.2011 22:57

Sýningarþjálfun schaferdeildar

14.06.2011
Sýningarþjálfun
Picture
Sýningaþjálfun deildarinnar fyrir deildarsýninguna verður alla miðvikudaga fram að sýningu.
Fyrsta sýningaþjálfunin verður haldin á morgun, miðvikudag, á Vífilstaðatúninu í Hafnarfirði kl. 19. Sýningaþjálfanir deildarinnar verða eftirfarandi:

Miðvikudag  15. júní  Vífilstaðatúni kl. 19
Miðvikudag  22. júní  Vífilstaðatúni kl. 19
Miðvikudag  29. júní  Vífilstaðatúni kl. 19
Miðvikudag    6. júlí   Guðmundarlundi kl. 19
Miðvikudag  13. júlí   Guðmundarlundi kl. 19

Hvert skipti kostar 500 kr. og rennur allur ágóði beint til Schäferdeildarinnar. Mikilvægt er að taka með sér nammi eða dót fyrir hundinn, kúkapoka, taum (sýningataum) og einnig er gott að hafa keðju meðferðis.

Sjá kort inn á http://schaferdeildin.weebly.com/index.html

09.06.2011 16:10

Ganga og fl


Frétt frá Schaferdeild

Athugið að skráningarfrestur á sýninguna hefur verið framlengdur fram á föstudag, 10. júní. Skráning fer fram í gegnum skrifstofu HRFÍ.

Næsta Schäferganga verður á mánudaginn næsta, annan í hvítasunnu. Hittumst við Grillhúsið Sprengisandi og gengið þaðan í Elliðaárdalinn. Eftir gönguna ætlum við að setjast inn á Grillhúsið í smá spjall.

Sporapróf Schäferdeildarinnar verður haldið sunnudaginn 17. júlí sem er sömu helgi og deildarsýningin. Albert Steingrímsson dæmir og skráning fer fram í gegnum Schäferdeildina.

Sjá nánar á vef deildarinnar www.schaferdeildin.is.

Bestu kveðjur,
stjórnin

09.06.2011 13:38

D-got á hvolpanámskeiði hjá Hundalíf.is


Nú er D-gotið búið að vera í mánuð á hvolpanámskeiði hjá Þórhildi í Hundalíf.is
emoticon 
Allir rosalega duglegir og búnir að taka miklum framförum

sjá Flotta hælgöngu hjá Ice Tindra Dreamer 4. mánaða




Er svo stolta af öllum hópnum mínum
emoticon emoticon emoticon

09.06.2011 09:04

Framlendur frestur 10. júni 2011

Skráningafrestur á Schaferdeilarsýninguna
framlengdur til 10. júni 2011


http://www.hrfi.is/default.asp?page=44&Article_ID=1276&NWS=NWS



08.06.2011
Viðburðir á vegum deildarinnar

Picture

Skráningarfrestur á deildarsýningu Schäferdeildarinnar hefur verið framlengdur fram á næsta föstudag, þann 10. júní.

Næsta ganga er fyrirhuguð á mánudaginn næsta, 13. júní, sem er Annar í hvítasunnu. Við munum hittast við Grillhúsið Sprengisandi kl 14 og taka um það bil klukkustundargöngu um Elliðaárdalinn. Eftir gönguna geta þeir sem vilja sest niður inn á Grillhúsið í smá spjall.

Sporapróf Schäferdeildarinnar verður haldið sunnudaginn 17. júlí. Sporaprófið er haldið í tengslum við deildarsýninguna og mun vonandi nýtast fólki vel að geta sótt sýningu og próf sömu helgi. Albert Steingrímsson verður dómari og er prófgjald það sama og í önnur próf á vegum Vinnuhundadeildarinnar. Skráning fer í gegnum deildina. Vinsamlega sendið okkur póst á [email protected] með helstu upplýsingum og hægt verður að millifæra á reikning deildarinnar. Upplýsingar sem þurfa að koma fram eru: nafn hunds, nafn eiganda, hvaða sporapróf (1,2,3) ásamt símanúmeri og emaili sem hægt er að ná í ef breytingar verða. Reikningsnúmer deildarinnar er 0586-26-691010 og kt. er 691010-0230. Vinsamlega setjið nafn hunds sem skýringu með millifærslunni.

Á laugardagskvöldinu, eftir deildarsýninguna, verður farið út að borða. Allir meðlimir deildarinnar eru velkomnir og dómari sýningarinnar, Fredrik Steen, mun eyða kvöldinu með okkur. Stjórn deildarinnar er að leita eftir tilboðum á veitingastöðum og eru allar ábendingar vel þegnar.

Sýningarúrslit síðustu sýningar koma inn fljótlega ásamt umsögnum.



emoticon 

07.06.2011 23:32

Skráning á deildarsýningu

Síðasti skráningadagur á morgun 8. júni
á deildarsýninguna hjá Schaferdeildinni.
Sýningin verðu haldin í Guðmundalundi og
dómarinn heitir Fredrik Steen
Opið á skrifstofu HRFÍ til kl 15 á morgun
sími 588-5255. www.hrfi.is

Sjá frétt frá deildinni

Deildarsýning Schäferdeildarinnar verður haldin laugardaginn 16. júlí 2011


Schäferdeildin mun halda glæsilega sýningu í sumar. Dómari verður Svíinn Fredrik Steen sem er bæði Schäferræktandi og sérhæfður Schäferdómari.

Sýningin verður haldin úti en deildin hefur tekið frá svæðið Guðmundarlund í Kópavogi. Aðgangur á sýninguna er ókeypis.

Skráning fer fram í gegnum skrifstofu HRFÍ. Sýningagjald verður það sama og fyrir aðrar sýningar HRFÍ.

Við hvetjum alla Schäfereigendur til að taka þátt og nýta þetta góða tækifæri til þess að fá dóm frá sérhæfðum Schäferdómara.

Skráningafrestur rennur út miðvikudaginn 8. júní.


Picture
Guðmundarlundur


Picture
Fredrik Steen
Picture
Picture
Guðmundarlundur er fallegt og gróið landsvæði í eigu Skógræktar Kópavogs. Deildin fær afnot af allri aðstöðu svo sem skálanum sem sést á myndinni til vinstri auk salernisaðstöðu.

Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.

Deildarsýning Schäferdeildarinnar

Fyrsta og eina deildarsýning deildarinnar til þessa var haldin 1988 eða fyrir 23 árum síðan. Deildin hefur áður sótt um leyfi til þess að halda sýningu en ekki fengið vilyrði fyrir því fyrr en nú.

Markmið okkar er að gera sýninguna sem glæsilegasta og eftirminnilega. Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin en Verslunin Bendir ehf. gefur bikara og medalíur á sýningunni.


Valinn verður:

Besti hundur sýningar

Besti ungliði sýningar

Besti hvolpur sýningar

Besti öldungur sýningar

Besti afkvæmahópur sýningar

Besti ræktunarhópur sýningar

Besta par sýningar


Á sýningunni verður mögulegt að fá íslenskt meistarastig auk þess sem árangur mun telja til stigahæstu hunda og stigahæsta ræktenda deildarinnar.

Styrktaraðilar sýningarinnar:

Picture
Picture
Picture

03.06.2011 12:38

D-got 4 mán.





Nú er flotta D-gotið 4. mánaða í dag,
Búin að stækka og þroskast og eru ótrúlega dugleg, svo eru þau öll hjá Þórhildi í Hundalíf á hvolpanámskeiði.
Rosalega gaman að fylgjast með þessum skottum.

Það fara 3 hvolpar á sýningu á morgun,
Ice Tindra Dancer, Ice Tindra Dixi og Ice Tindra Diesel gangi ykkur vel á morgun.

31.05.2011 22:45

Deildarsýning í 16. Júlí



31.05.2011

Deildarsýning Schäferdeildarinnar
 

Skráningarfrestur á sýninguna rennur út eftir eina viku: miðvikudaginn 8. júní.

Skráning fer fram í gegnum skrifstofu HRFÍ, s. 588-5255.


Hundaeigendur sem vilja sýna hundinn sinn en treysta sér ekki til þess geta haft samband við stjórn deildarinnar og við aðstoðum við að finna sýnanda.

Einnig minnum við á síðustu sýningarþjálfun deildarinnar að þessu sinni. Hún fer fram annað kvöld kl 19 og kostar aðeins 500 kr. Athugið að það er breytt staðsetning, sýningaþjálfunin fer fram í bílastæðahúsi undir Turninum Smáralind.

23.05.2011 11:09

Sýningarþjálfun Schaferdeildar


Síðasta sýningarþjálfun fyrir júni sýningu er
1.júni kl:19:00

Sýningaþjálfunin fer fram í bílastæðahúsi undir Turninum Smáralind.

Minna á sýningarþjálfun

Schäferdeildin mun halda sýningaþjálfun á miðvikudögum fram að næstu sýningu HRFÍ. 
Hvert skipti kostar 500 kr. og rennur allur ágóði beint til Schäferdeildarinnar.


Sýningaþjálfun Schäferdeildarinnar verður eftirfarandi daga:

Miðvikudaginn 11. maí kl. 19
Miðvikudaginn 18. maí kl. 18
Miðvikudaginn 25. maí kl. 19
Miðvikudaginn 1. júní kl. 19

Koma með taum, nammi, poka og góða skapið.

emoticon emoticon
 
Hlökkum til að sjá ykkur.

17.05.2011 10:13

Deildarsýning Schaferdeildar


Tekið af Schaferdeildarsíðunni, meiri upplýsingar:

http://schaferdeildin.weebly.com/deildarsyacutening-2011.html

emoticon 


Tekið af www.hrfi.is
17.5.2011 09:37:29
Deildarsýning Schäferdeildar


Opið er fyrir skráningu á Deildarsýningu Schäferdeildarinnar sem haldin verður þann 16. júlí næstkomandi. Dómari sýningarinnar er sænski dómarinn Fredrik Steen.
Hann sérhæfir sig sem dómari á Schäfer og hefur FCI réttindi til að dæma tegundahóp 1.

Sýningin verður haldin í Guðmundarlundi, Kópavogi, sem er fallegt gróið landssvæði í eigu Skógræktar Kópavogs og hefur uppá að bjóða alla aðstöðu.

Schäferdeildin hefur ekki haldið deildarsýningu síðan 1988, en það var árið sem deildin var stofnuð. Verður því mikið lagt upp úr að gera þessa sem glæsilegasta.
Sú nýjung verður tekin upp á sýningunni að einnig verður valinn Besti ungliði sýningar og viljum við því benda fólki á að aðeins þeir hundar sem skráðir eru í ungliðaflokk keppa um besta ungliða sýningar.

Skráning á sýninguna fer fram á skrifstofu Hundaræktarfélags Íslands, í síma 588-5255.  Greiðsla verður að fylgja skráningu, ekki er boðið upp á millifærslur í heimabanka.
Skráningarfresti lýkur þann 8. júní næstkomandi.






15.05.2011 07:36

Sporapróf 14. maí 2011


Ice Tindra Aragon

Ice Tindra Aragon fór í sporapróf 14. maí  í Spori I og gekk rosalega vel og með Frábærum árangri. 
Aragon náði 98 stigum af 100 mögulegum.
Við erum mjög stolt af  Aragon emoticon  
og nú er bara að fara í Spor II emoticon

13.05.2011 16:00

Schafer á laugardaginn :-)

Tekið af www.hrfi.is

Fréttir

13.5.2011 12:44:56
Upplýsingar frá Sýningarstjórn

Tegundahópar 1, 2, 4, 5, 6, 7 og 10 verða á laugardeginum 4. júní og Tegundahópar 3, 8 og 9 verða á sunnudeginum, 5. júní.
Ekki var ástæða til að setja tegundir á föstudagskvöld, ungir sýnendur munu þó keppa á föstudeginum 3. júní eins og venjulega.

Dagskrá sýningar verður birt á vefsíðu félagsins eftir helgi.

09.05.2011 22:59

Hjá Schaferdeild

Sýningaþjálfun deildarinnar
 
Schäferdeildin mun halda sýningaþjálfun á miðvikudögum fram að næstu sýningu HRFÍ. Þær verða haldnar úti á túni við Frumherja Hesthálsi. Hvert skipti kostar 500 kr. og rennur allur ágóði beint til Schäferdeildarinnar.

Mikilvægt er að taka með sér nammi eða dót fyrir hundinn, kúkapoka, taum (sýningataum) og einnig er gott að hafa keðju meðferðis.

Sýningaþjálfunin verður vanalega kl. 19 en þó verður undantekning miðvikudaginn 18. maí en þá er aðalfundur HRFÍ sama kvöld svo sýningaþjálfunin verður kl. 18 þann dag.

Sýningaþjálfun Schäferdeildarinnar verður eftirfarandi daga:

Miðvikudaginn 11. maí kl. 19
Miðvikudaginn 18. maí kl. 18
Miðvikudaginn 25. maí kl. 19
Miðvikudaginn 1. júní kl. 19

04.05.2011 20:51

Tilkynning frá HRFÍ

 

Opnunartími fimmtudaginn 5. maí

Opið er í síma og á skrifstofu HRFÍ frá kl. 10:00 - 17:00 fimmtudaginn 5. maí, föstudaginn 6. maí er skrifstofan aðeins opin frá kl. 9:00 - 13:00.
Skráning á júnísýningu HRFÍ rennur út á föstudaginn 6. maí og hvetjum við alla til að skrá fyrir þann tíma.

Berist greiðsla ekki með skráningu telst skráningin ekki gild.

Hægt er að greiða fyrir skráningu með kreditkorti í gegnum síma/e-maili eða koma við á skrifstofu félagsins.  Félagið býður ekki upp á millifærslu í heimabanka á sýningargjöldunum.


Schafer

Nafn:

KRISTJANA

Farsími:

790-6868

Um:

Schafer ræktun - Þýskur fjárhundur

Sýningar- Þjálfun kl 19

atburður liðinn í

3 daga

Alþjóðleg HRFÍ 28-29.sept

eftir

2 mánuði

1 dag

Tvöföld sýning HRFÍ 10.og 11.ágúst

eftir

14 daga

DNA-test

atburður liðinn í

3 ár

4 mánuði

Belcando hundafóður

atburður liðinn í

5 ár

3 mánuði

26 daga

Ice Tindra Bæjarrölt kl 14

atburður liðinn í

1 mánuð

25 daga

Orivet heilsutest

atburður liðinn í

10 mánuði

22 daga

Tenglar

Flettingar í dag: 669
Gestir í dag: 53
Flettingar í gær: 3779
Gestir í gær: 168
Samtals flettingar: 928034
Samtals gestir: 78240
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:11:50
Flettingar í dag: 669
Gestir í dag: 53
Flettingar í gær: 3779
Gestir í gær: 168
Samtals flettingar: 928034
Samtals gestir: 78240
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:11:50